Opnun tilboða
Vetrarþjónusta 2023-2026, Einarsstaðir – Möðrudalsvegamót
Opnun tilboða 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Einarsstaðir – Möðrudalsvegamót.
Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 40.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2026.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 179.505.000 | 91,8 | 34.430 |
Jón Ingi Hinriksson ehf., Bergholti | 162.444.000 | 83,1 | 17.369 |
Vinnuvélar Reynis B Ingvasonar ehf., Brekku | 145.074.801 | 74,2 | 0 |